Barnabókaútgáfa Forlagins blómstrar þessi dægrin og í hverri viku bætast við flottar, fyndnar, fróðlegar og skemmtilegar bækur handa barnungum bókaormum. Þetta hefur greinilega ekki farið fram hjá Birnu Björnsdóttur, barnabókaritdómara Morgunblaðsins, sem í blaðinu í dag stráir stjörnum yfir nokkrar af nýútkomnum bókum okkar. Þetta eru Af hverju gjósa fjöll? (**** og 1/2), Hávamál (*** og ½), Flugan sem stöðvaði stríðið (****) og Náttúrugripasafnið (****).
Ungir lestrarherhestar þurfa greinilega ekki að kvíða skorti á gæðafóðri næstu vikurnar.