Einar Mar

Bankastræti núll á dönsku

Það er óðum að renna upp fyrir frændum okkar Dönum að Bankastræti núll er ekki póstfang Seðlabanka Íslands. Samnefnt ritgerðasafn Einars Más Guðmundssonar kom út þar í landi fyrir skemmstu og hefur þegar vakið eftirtekt. Í danskri þýðingu heitir verkið Bankstræde 0 og Erik Skyum-Nielsen þýðir.

Fjallað er um Bankstræde 0 í Berlingske og Information og ljúka ritdómarar beggja miðla lofsorði á ritgerðir Einars Más. Jørgen Johansen gefur bókinni fjórar stjörnur og segir m.a.:

„Heilög reiði er áberandi í ritgerðum [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][Einars Más] Guðmundssonar og það sama má segja um tiltrú hans á skáldskapnum sem vopni gegn innihaldsleysi og tómhyggju. Höfundurinn er bæði Skáld og Baráttujaxl með stórum staf. Nógu er að sinna fyrir þá báða á Íslandi nú um stundir.“

Og Andreas Harbsmeier skrifar í Information:

„Bókin sýnir ekki eingöngu að [Einar Már] Guðmundsson er afburðahöfundur heldur jafnframt glöggur samfélagsrýnir … menningarleg samviska sem tekur íslenska þjóðarsál til ástúðlegrar meðferðar með meðulum sjálfsgagnrýni og húmors.“

[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning