Vilborg og Viktor

Bækur Viktors og Vilborgar í Bandaríkjunum

Útgáfufyrirtækið Amazon Crossing, sem er í eigu netrisans Amazon.com, hefur keypt útgáfuréttinn að þremur bókum Viktors Arnar Ingólfssonar. Flateyjargáta mun koma út í haust, Engin spor í apríl 2012 og Afturelding í júlí 2012. Félagið hefur einnig fastað sér útgáfuréttinn að Galdri, skáldsögu Vilborgar Davíðsdóttur.

Fram kom á dögunum að félagið hafi ákveðið að gefa út tíu bækur eftir íslenska höfunda í tilefni af heiðursessi Íslands á bókamessunni í Frankfurt í haust en hið nýstofnaða útgáfufélag sérhæfir sig í  útgáfu erlendra bóka bæði í prentuðu og í Kindle-rafbókarformi. Eitt lykilatriði í vali útgáfunnar á bókum þeirra eru umsagnir lesenda sem birtar eru á heimasíðum Amazon í mismunandi löndum. Fyrrgreindar bækur Viktors og Vilborgar eiga það einmitt sammerkt að hafa hlotið frábærar umsagnir á þýsku Amazon síðunni.

INNskráning

Nýskráning