Í vefverslun Forlagsins er að finna gott úrval af orðabókum og ýmis konar kennskubókum fyrir skólann. Þeir sem eru að fara að læra nýtt tungumál ættu að finna orðabók við hæfi. Nýjasta viðbótin í orðabókasafni Forlagsins er Íslensk-spænsk orðabók sem lengi hefur verið beðið eftir en einnig er hægt að finna orðabækur fyrir ensku, dönsku, norsku, þýsku og frönsku svo eitthvað sé nefnt.
Í vefversluninni er einnig að finna ýmis konar handbækur sem gott er að eiga þegar setið er á námsbekk. Handbók um íslensku kemur sér oft vel og ekki síst þeim sem fást við skriftir eða leggja stund á íslensk fræði. Táknin í málinu er önnur handbók sem ætti að gagnast listfræðinemum, bókmenntafræðinemum og þeim sem fást við heimspeki eða táknfræði vel. Í bókinni er gerð grein fyrir merkingu, sögu og birtingarmyndum mörg hundruð tákna með tilvísunum í bókmenntir og listasverk frá ýmsum tímum. Einnig er hægt að fá Stjórnarskrána sjálfa sem rafbók á vægu verði, svo að lögfræðinemar, stjórnmálafræðinemar og aðrir stjórnarskrárelskendur geta hlaðið ritinu beint inn í tölvuna sína.
Bókaðu þig upp fyrir næstu önn og taktu hana með trompi!