Síðustu vikuna hafa komið út þrjár bækur sem allir stjórnendur í fyrirtækjum eða stofnunum ætti að eiga.
Bækurnar Samskiptafærni og Skipulagsfærni eftir þá Hauk Inga og Helga Þór eru bækur sem, eins og titill bókanna gefur til kynna, hjálpa stjórnendum að bæta samskipti sín og skipulag. Bækurnar koma út í framhaldi af bókunum Leiðtogafærni og Stefnumótunarfærni sem komu út síðasta haust. Þessar fjórar bækur byggja á náminu Verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun sem höfundar kenna við Endurmenntun Háskóla Íslands. Mikil þörf hefur verið fyrir íslenskar stjórnunarbækur og hafa Haukur Ingi og Helgi Þór mætt þörfinni með þessum metnaðarfullu færnibókum sem sinna bæði hlutverki kennslubóka sem og handbóka fyrir fólk í atvinnulífinu.
Endurbætt útgáfa af hinni vinsælu handbók Starfsmannaval kom nýlega út. Í bókinni er fjallað um helstu þætti starfsmannavals; starfsgreiningu, öflun umsækjenda, hefðbundnar og óhefðbundnar aðferðir við að meta umsækjendur, ákvarðanatöku og reynslutíma. Bókin er gríðarlega hagnýt og gagnleg handbók fyrir alla stjórnendur og mikilvægur leiðarvísir þegar vanda skal starfsmannavalið.
Metnaðarfullar og hagnýtar handbækur sem eiga heima í bókahillunni í skólanum, heima og í vinnunni.