Kolbrún Bergþórsdóttir blaðamaður og gagnrýnandi ritar fróðlega grein um franska rithöfundinn Irene Nemirovsky í sunnudagsblað Moggans. Nafn Nemirovsky er nú á allra vörum enda rata gleymdar bækur hennar nú á náttborð lesenda um allan heim. Frægasta verk hennar, Suite Francaise, kemur út hjá Forlaginu í haust.
Skáldsagan Suite Francaise er af mörgun talin meistaraverk. Nemirovsky hafði ætlað sér að skrifa bók í fimm bindum en lauk einungis við tvö. Í því fyrra rekur hún sögu fjölskyldna sem flýja París eftir að nasistar hernema borgina. Hún lýsir hinum ólíku stéttum í frönsku samfélagi og hvernig hver stétt um sig reynir á fáránlegan hátt að halda í eigin siði í samfélagi sem er í upplausn. Í seinna bindinu lýsir hún lífinu í litlu þorpi þar sem hluti bæjarbúa hefur samvinnu við þýska hernámsliðið og hættulegar ástir kvikna. Hún hugðist síðan skrifa framhaldið eftir því hvernig stríðið þróaðist en var sjálf handtekin og lést í gasklefanum í Auschwitz árið 1942.