Barnamenningarhátíð

Bækur á Barnamenningarhátíð

Þessa dagana stendur yfir barnamenningarhátíð í Reykjavík. Bókmenntaborgin tekur þátt í herlegheitunum og býður upp á alls kyns lestrarhvetjandi bókafjör fyrir börnin.

Skemmtilegur ratleikur verður kringum Reykjavíkutjörn þar sem börn og foreldrar leysa léttar þrautir tengdar textum úr barnabókum. Einnig verður mikið lestrarfjör í Ævintýrahöllinni, Iðnó, laugardaginn 21. apríl kl. 13:00-14:00. Sigrún Eldjárn mætir með Bétvo Bétvo og les upp úr bókinni, Jón St. Kristjánsson spjallar um Mítsó og Bastían sem lenda í stórkostlegum ævintýrum í bókinni Ótrúleg saga um risastóra peru og Bergljót Arnalds segir frá litla tröllastráknum úr bókinni Íslensku húsdýrin og Trölli. Loks mætir tónelska músin Maxímús með skapara sínum, Hallfríði Ólafsdóttur flautuleikara, og geta börnin tekið þátt þegar Maxímús dansar við lagið sitt.

Dagskrá Barnamenningarhátíðar

Bókmenntaborg á Barnamenningarhátíð

INNskráning

Nýskráning