Siri og Jane

Austen og Hustvedt

Það mátti skilja á máli Sigurðar Valgeirssonar í Kiljunni í gærkvöldi að klassíska 19. aldar skáldsagan Emma eftir Jane Austen hefði komið honum þægilega á óvart þegar hann las hana í fyrsta skipti fyrir þáttinn. „Hún togaði alltaf í mig,“ sagði hann hissa, „maður bara hvarf inn í þetta samfélag.“ Hann hefur kannski haldið að bækur Jane Austen væru bara fyrir konur en tilfellið er að þær hafa skemmt fólki af báðum kynjum í tvö hundruð ár.

Þau Kolbrún Bergþórsdóttir og Sigurður töluðu við Egil um Emmu í gær og líka Sumar án karlmanna eftir Siri Hustvedt. Bækurnar tvær fengu skínandi góðar umsagnir hjá öllum þrem þátttakendum; það lá við að Egill bölvaði í þættinum þegar hann var að hrósa Siri Hustvedt en hann gleypti snarlega seinni hluta bannorðsins og byrjaði upp á nýtt: „Þetta er mjög flinkur höfundur!“

Sigurður notaði einkar skemmtilega myndlíkingu í samanburði á sögunum tveim: „Austen er eins og bíll sem líður áfram með lokað húdd en Hustvedt sýnir manni undir húddið, útskýrir ýmislegt, segir okkur hvernig hún býr til söguna, hún talar við mann sem lesanda.“Og Kolbrún þakkaði Forlaginu sérstaklega fyrir hve fallega Emma væri úr garði gerð; það væri gaman að fá heimsbókmenntirnar ekki bara í kilju heldur líka innbundnar og vandaðar. Þess má geta að þessi frumútgáfa Emmu á íslensku er prýdd myndum eftir Hugh Thomson sem fyrst birtust á prenti árið 1896.

INNskráning

Nýskráning