Auður í Dalina

Dalamenn og nærsveitungar eiga von á góðum gesti nk. fimmtudag þegar Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur heimsækir héraðið með sögu sína af ættmóðurinni Auði djúpúðgu í farteskinu. Auður er einn frægasti landnemi Íslands – hún var formóðir Laxdæla, nam land í Dölum og bjó í Hvammi. Vilborg kynnir bók sína annars bæði í Búðardal og í Stykkishólmi en hermt er að hún muni líka heimsækja Svein Björnsson bónda í Hvammi sem er annálaður áhugamaður um sögu og fornan kveðskap. Sögufélag Dalamanna, Lionsklúbbur Dalamanna og Dalabyggð standa að heimsókninni.

INNskráning

Nýskráning