Bækurnar rata víða og okkur var bent á þau gleðitíðindi að út eru komin tvö ný íslensk frímerki sem tengjast þekktum íslenskum barnabókum. Pósturinn gefur út svokölluð Evrópu-frímerki en þau prýða nú teikningar úr bókunum Gott kvöld, eftir Áslaugu Jónsdóttur, og Örlög guðanna sem Kristín Ragna Gunnarsdóttir myndskreytti.
Þema Evrópumerkjanna að þessu sinni eru barnabækur og barnabókateikninga en það var grafíski hönnuðurinn Örn Smári Gíslason sem útfærði frímerkin fínu.
Við hvetjum bókaunnendur til að senda vinum sínum í Evrópu glaðning með svona fallegum merkjum.