Við minnum áhugasama lesendur á hina rómuðu bók Í landi karlmanna eftir Hisham Matar. Þar er á ferðinni einstök saga um ungan dreng sem í Líbýu sem elst upp í skugga ógnarstjórnar Gaddafis. Morgunútvarpið ræddi við þýðanda bókarinnar, Ísak Harðarson, í morgun.
Suleiman er níu ára drengur sem elst upp í Trípólí undir ógnarstjórn Gaddafis á áttunda áratugnum. Einn daginn er nágranni fjölskyldunnar dreginn á brott af svartklæddum útsendurum Gaddafis og smám saman rennur upp fyrir Suleiman að þeir hafa líka illan bifur á föður hans. Pískrið og óttinn magnast allt í kringum Suleiman og honum er ekki mikill stuðningur í móður sinni sem er ráðvillt, drykkfelld og bitur eftir að hafa verið gefin sér tvöfalt eldri manni, aðeins fjórtán ára gömul.
Í landi karlmanna eftir Hisham Matar er fyrsta bók höfundar sem hefur hlotið afar góðar móttökur, enda átakanleg og falleg í senn. Hún var meðal annars tilnefnd til Booker-verðlaunanna 2006 og Guardian-verðlaunanna 2006.