Skáldsaga Andra Snæs Magnasonar, Lovestar, gerir stormandi lukku beggja vegna álanna. Bókin kom út í Þýskalandi nýverið og var m.a. til sölu í Borgarleikhúsinu í Hamborg þar sem Andri Snær veitti Kairos verðlaununum viðtöku um helgina. Útgefandinn mætti á svæðið með 150 eintök sem hurfu hraðar en Houdini. Höfundurinn var að vonum kátur með þann árangur og þá náðist af honum þessi dramatíska mynd.
Hér heima endurskapa Herranæturfélagar söguheim Lovestar á sviði. Leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar á sögunni er nú til sýninga á Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Nánar má fræðast um sýninguna hér.