Seierstad

Åsne Seierstad í Norræna húsinu

Åsne Seierstad, höfundur Einn af okkur og alþjóðlegu metsölubókarinnar Bóksalinn í Kabúl, verður gestur á höfundakvöldi Norræna hússins í kvöld, þriðjudaginn 1. mars, og ræðir bækurnar sínar og næstu verkefni.

Åsne er norskur blaðamaður og rithöfundur. Hún hefur starfað sem fréttaritari fyrir norska og sænska fréttamiðla um heim allan. Seierstad vakti mikla athygli fyrir umfjöllun sína um stríðin í Kosovo, Afganistan og Írak.

Nú er komin út á íslensku í þýðingu Sveins H. Guðmarssonar nýjasta bók Seierstad Einn af okkur: Saga af samfélagi en hún fjallar um hryðjuverkamanninn Anders Behring Breivik og fjöldamorðin í Útey þann 22. júlí árið 2011. Í bókinni er ekki aðeins sögð saga gerandans heldur einnig saga fórnarlambanna en með bókinni skrifar Seierstad í fyrsta sinn um heimaland sitt, Noreg.

Einn af okkur lýsir voðaverkum og hryllingi en hún er líka mögnuð og mikilvæg samtímasaga um von og höfnun, ást og fordóma.

New York Times valdi Einn af okkur eina af tíu bestu bókum ársins 2015.

Dagskráin í Norræna húsinu hefst kl. 19:30 og aðgangur er ókeypis. Hér má finna frekari upplýsingar.

Åsne var í viðtali í Kastljósinu í gærkvöldi og ræddi Einn af okkur og uppgang hægri öfgamanna í Evrópu. Stórglæsilegt viðtal sem er góð upphitun fyrir kvöldið. Viðtalið byrjar á 20:20 og má sjá hér.

INNskráning

Nýskráning