Sólahringur norrænu krimmanna: Les Boréales eða Norðurljósin er ein stærsta norræna listahátíðin í Frakklandi og er nú haldin í 21. skipti í borginni Caen í Normandy.
Heill sólarhringur verður nú helgaður norrænum krimmum með sýningum á kvikmyndum, sjónvarpsþáttum, umræðum og kynningu á glæpasögum þessara landa.
Tveir norrænir höfundar, Camilla Läckberg frá Svíþjóð og Árni Þórarinsson fá sérstaka klukkutíma dagskrá hvor, þar sem þau ræða um bækur sínar.
Nýlega kom bókin Ár kattarins út eftir Árna Þórarinsson sem fjallar um Einar blaðamann og ráðgáturnar í lífi hans og starfi.