Árni Þórarinsson sat fyrir svörum hjá harðsvíruðu frönsku sjónvarpsfólki frá Arte-sjónvarpsstöðinni sem heimsótti Forlags-stasjónina okkar fyrir helgi. Hróður Árna berst víða en sjónvarpsfólkið franska hafði áhuga á að kynnast þessum vinsæla glæpasagnahöfundi betur, ekki síst vegna þess að sögur hans hafa sterka samfélagslega skírskotun og hann er skorinorður um menn og málefni.
Viðtalið við Árna verður hluti af þáttaröð Arte-sjónvarpsstöðvarinnar um evrópska rithöfunda en kollegar hans í rithöfundastétt, Auður Ava Ólafsdóttir og Jón Kalman Stefánsson, verða þar einnig til umfjöllunar. Tökuliðið ferðaðist vítt og breitt um landið, þar á meðal norður á Akureyri þar sem þau heimsóttu söguslóðir Einars blaðamanns í Tíma nornarinnar.