Arndís Þórarinsdóttir var í gær tilnefnd til Norrænu barnabókaverðlaunanna fyrir bók sína Játningar mjólkurfernuskálds. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár og eru heiðursverðlaun. Félag fagfólks á skólabókasöfnum tilnefnir til verðlaunanna af Íslands hálfu og ráðast úrslit á samnorrænum fundi skólabókasafnsfræðinga í Færeyjum í sumar.
Játningar mjólkurfernuskálds kom út 2011 og var fyrsta bók höfundar. Þar segir frá fyrirmyndarunglingi í 8. bekk sem umturnar lífi sínu og feðra sinna skyndilega einn haustdag þegar hún er gripin með dóp í leikfimipokanum sínum – við tekur brottrekstur úr skóla og flutningur í annað hverfi sem dregur heldur betur dilk á eftir sér. Eitt af því sem skólabókasafnsfræðingarnir tóku til greina við val sitt voru vinsældir bókarinnar á söfnunum og var samdóma álit allra nefndarmanna að Játningarnar stoppuðu aldrei lengi í hillum safnanna heldur væru stöðugt í útláni.