Arnaldur toppar í Frakklandi

Bók Arnaldar Indriðasonar, Harðskafi, fór beint  í efsta sæti heildarmetsölulista franska blaðins L’Express í liðinni viku. Útgefandinn þar í landi svífur skýjum ofar þessa dagana enda er metsölulisti L’Express talinn sá virtasti í landinu. Harðskafi kom út í Frakklandi þann 8. febrúar sl. en bókin hefur fengið skínandi góða dóma í frönsku miðlunum.

Meðal annars segir Birgitte Hernandez, gagnýnandi Le Point  „Arnaldur Indriðason magnar upp galdur. Frásagnatöfrar hans leiða söguhetjuna í gegnum ráðgátuna af ímyndunarafli, skilningi og innsæi“. Mireille Descombes hjá L’Hebdo skrifar eftirfarandi um bókina: „…hárfín flétta, lipur uppbygging þar sem mismunandi sjónarhornum er víxlað… Áhuginn vex með sérhverri nýrri rannsókn Erlendar Sveinssonar.“

Bækur Arnaldar njóta mikilla vinsælda á meginlandinu og það hefur komið fyrir að margar bóka hans séu samtímis á frönskum metsölulistum. Hann hefur þó ekki fyrr stokkið beint í fyrsta sætið líkt og nú. Til marks um dálæti Frakka má einnig geta þess að metsölustikan Datalib.net mælir nú Harðskafa í 1. sæti á lista yfir vinsælustu spennusögurnar aðra vikuna í röð og í  4. sæti á heildarlista vinsælustu bókanna, en í fyrri viku vermdi hún annað sætið.

INNskráning

Nýskráning