Guðrún Eva og Arnaldur

Arnaldur og Guðrún Eva á opnunarathöfn Bókasýningarinnar


Formleg opnunarathöfn Bókasýningarinnar í Frankfurt fór fram 11. október, fyrir fullu húsi, þar sem rithöfundarnir Arnaldur Indriðason og Guðrún Eva Mínervudóttir töluðu fyrir hönd íslenskra rithöfunda. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti ræðu fyrir hönd heiðursgestsins.
Arnaldur Indriðason þakkaði Þjóðverjum þeirra þátt í viðgangi íslenskra bókmennta á erlendri grundu í áranna rás og Guðrún Eva talaði um mikilvægt hlutverk bókmenntanna sem er m.a. að hreyfa við okkur, hrífa hugsunina upp á hærra plan, virkja fegurðarskyn og blása okkur í brjós réttláta reiði og ást til lífsins.
Bæði Arnaldur og Guðrún Eva gefa út nýja bók á allra næstu vikum og bíða margir spenntir eftir að drekkja sér í bækur þessara vinsælu höfunda.



INNskráning

Nýskráning