Hypothermia

Arnaldur á lista The Sunday Times

The Sunday Times sendi á dögunum frá sér lista yfir 50 bestu glæpa- og spennusögur síðustu fimm ára og viti menn, Harðskafi eftir Arnald Indriðason (Hypothermia á ensku) tyllti sér í 11. sæti á lista glæpasagna, efst íslenskra bóka! Gaman er að segja frá því að Arnaldur er ekki eini íslenski höfundurinn á listnum en Yrsa Sigurðardóttir fylgir í humátt á eftir honum og situr í 13. sæti, sömuleiðis á glæpasagnalistanum.

Listanum var skipt í tvo hluta: 25 bækur í flokki glæpasagna og 25 bækur í flokki spennusagna. Þarna má finna ýmsa góðkunningja Forlagsins, s.s. Lee Child og Stephen King. Eins má á spennusagnalistanum finna bók sem væntanleg er hjá Forlaginu í haust, hina kynngimögnuðu Alex eftir Pierre Lemaitre. Forlagsskrifstofan hreinlega iðar af spenningi!

Hér má skoða listann í heild sinni

INNskráning

Nýskráning