Næstkomandi fimmtudag, 17. nóvember, verður efnt til arabískrar veislu í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Þar munu borð svigna undan arabískum kræsingum þeirra Línu Mazar og Abeer Mahmood sem búsettar eru á Akranesi og ætla að töfra fram spennandi rétti frá Írak og Palestínu. Þá mun Sigríður Víðis Jónsdóttir lesa úr bók sinni, Ríkisfang: Ekkert og rekja ýmsar hugmyndir sem liggja að baki ritun bókarinnar. Einnig mun Sigríður sýna ljósmyndir sem hún tók í Írak og Palestínu.
Veislan hefst kl. 19 og eins gott að bóka sem allra fyrst. Verðið er 2.800 kr. (matur, upplestur og myndasýning) en 2.500 fyrir hópa sem telja tíu manns eða fleiri.