Anton Helgi Jónsson

Anton Helgi fær Ljóðstaf Jóns úr Vör í annað sinn

Anton Helgi Jónsson hlaut í dag Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt „Horfurnar um miðja vikuna“. Þetta kom fram við athöfn á afmælisdegi Jóns í Salnum þar sem niðurstöður ljóðasamkeppninnar voru kynntar. Tíu ljóð komust í úrslit keppninnar að þessu sinni og tvö af þeim reyndust vera eftir Anton Helga, verðlaunaljóðið og annað til. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem skáldið hlýtur þessi ljóðaverðlaun. Anton Helgi hlaut Ljóðstafinn fyrst árið 2009 fyrir ljóðið „Einsöng án undirleiks“. Sama ár fékk hann sérstaka viðurkenningu fyrir stutt ljóð sem heitir Vorganga í Dölum. Bæði ljóðin birtust síðar í bókinni Tannbursti skíðafélagsins og fleiri ljóð. Bæði nýju ljóðin, verðlaunaljóðið og hitt sem komst í úrslit, birtast í næstu ljóðabók skáldsins sem væntanleg er hjá Máli og menningu síðar á þessu ári.

Horfurnar um miðja vikuna
Það er bara miðvikudagur
enn getur allt gerst 
enn er von

enn má finna rétta taktinn
finna sinn hljóm
jafnvel finna sig í góðu lagi

allt getur gerst

meðan enn leynist bílskúr
baka til í hausnum á mér
og band
sem djöflast frameftir.

INNskráning

Nýskráning