Fram hjá

Anna Karenina, 50 gráir skuggar og Madame Bovary

Á dögunum kom út hjá Forlaginu bókin Fram hjá eftir Jill Alexander Essbaum sem vakið hefur nokkra athygli fyrir krassandi lýsingar og dökkan undirtón. Í raun mætti segja að bókin, sem vakið hefur mikla lukku víða um heim, sé eins og blanda af Önnu Kareninu, 50 gráum skuggum og Madame Bovary. Hressandi blanda það!

Anna er bandarísk kona sem býr ásamt eiginmanni sínum og þremur ungum börnum í úthverfi Zürich í Sviss; hún er heimavinnandi húsmóðir og lifir hversdagslegu lífi þar sem allt virðist slétt og fellt og í föstum skorðum. En undir lygnu yfirborðinu dylst rótleysi, ófullnægja og hugarvíl og Önnu finnst hún komin í ógöngur með líf sitt. Löngun til að brjóta upp hversdagsleikann og fá spennu í tilveruna leiðir hana út í skammvinn en eldheit kynlífssambönd við karlmenn sem verða á vegi hennar. En framhjáhöldin færa henni enga hugsvölun og áður en varir hrifsa óvægin örlög öll völd úr höndum hennar.

Jill Alexander Essbaum er bókmenntaprófessor og skáld sem hefur gefið út ljóðabækur og hlotið viðurkenningar fyrir þær. Fram hjá er fyrsta skáldsaga hennar.

Djörf og taugatrekkjandi skáldsaga um siðgæði og sjálfsmynd, ófullnægju og rótleysi.

INNskráning

Nýskráning