Hin heimskunna bandaríska skáldkona Amy Tan er væntanleg til landsins í vikunni í tengslum við ráðstefnuna Art in Translation. Mun hún halda fyrirlestur um verk sín í Hörpu föstudaginn 19. september kl. 20.
Amy er íslenskum lesendum að góðu kunn því fjórar af skáldsögum hennar hafa verið þýddar á íslensku, Leikur hlæjandi láns, sem Forlagið endurútgefur í tengslum við komu Amyar, Kona eldhúsguðsins, Dóttir himnanna og Dóttir beinagræðarans.
Amy Tan mun svara spurningum úr sal, og að fyrirlestri loknum verður hægt að kaupa bækur hennar og fá þær áritaðar af höfundi. Miðasala fer fram á harpa.is og kostar 2000 kr. á fyrirlesturinn.