Kristín Eiríksdóttir og Auður Jónsdóttir

Alsæla í Kiljunni

„Þetta eru tvær harla góðar bækur,“ sagði Egill Helgason að lokinni umræðu í Kiljunni í gærkvöldi um Hvítfeld Kristínar Eiríksdóttur og Ósjálfrátt Auðar Jónsdóttur, „við sitjum hér nánast í sæluvímu!“

„Hvítfeld er fjölskyldusaga sem fjallar um lygar, Ósjálfrátt er fjölskyldusaga sem fjallar um skáldskap þannig að það er mikill skyldleiki þarna á milli,“ sagði Fríða Björk Ingvarsdóttir og hún var innilega hrifin af skáldsögunum tveim eins og félagar hennar, Egill og Eiríkur Guðmundsson. Þau greindu bækurnar báðar af mannviti og skilningi og opnuðu þær einstaklega vel fyrir lesendum um leið og þau gerðu sögurnar spennandi.

„Fyrst og fremst er þetta saga um það hvernig þetta skáldlega sjálf – þetta skapandi sjálf – verður til, þetta er þroskasaga rithöfundar. Mér finnst það vera kjarninn í þessu verki,“ sagði Fríða Björk um Ósjálfrátt. Og Eiríkur tók undir það: „Þessi bók er eiginlega skáldskaparfræði Auðar, hún er að sýna okkur hvernig hún varð til sem rithöfundur, sýna okkur þá reynslu sem gerði hana að höfundi,“ og honum finnst hún gera það afskaplega vel. Öllum fannst sagan óvenju skemmtileg, hlý og fyndin þrátt fyrir harkalegt söguefni.

Formið heillaði í bók Kristínar, „afskaplega vel heppnað, hnitmiðað og fágað,“ sagði Fríða. „Hún byggir upp sögu þar sem hún leikur á lesandann í fjórgang …“ Og þau ræddu fram og aftur dýpt sögunnar, lúmska ádeilu hennar og skemmtilegt yfirborð, fannst til dæmis flott hvernig hún vísar í samtímann og notar persónur eins og Britney Spears í umfjöllun sinni um kvenímyndir.

Þetta eru fyrstu umsagnir um bækurnar tvær og mega skáldkonurnar ungu vel við una.

INNskráning

Nýskráning