Jón Sigurðsson

Allt um þjóðhetjuna fyrir börnin

Öll börn vita að á 17. júní eru hátíðarhöld á landinu, skemmtidagskrá út um allt land, gasblöðrur, stórir sleikibrjóstsykrar, íslenski fáninn og lúðrasveitir.

En vita öll börn af hverju blásið er til þessara hátíðarhalda? Vita þau að 17. júní er afmælisdagur þjóðhetjunnar Jóns Sigurðssonar? Og hver er eiginlega þessi Jón, fyrir utan það að vera á fimmhundruðkallinum og vera í formi styttu á Austurvelli?

Í bókinni Óskabarn – bókin um Jón Sigurðsson er þessum spurningum svarað með skemmtilegri umfjöllun um ævi og störf Jóns Sigurðssonar. Sagan um ósköp venjulegan sveitastrák sem verður að lykilmanni í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga er sögð með hjálp ríkulegra myndskreytinga og ljósmynda.

Þetta er sannkölluð 17. júní bók!





INNskráning

Nýskráning