Skáldsögur Kristínar Marju Baldursdóttur njóta mikilla vinsælda í Þýskalandi. Í tilefni þess að Ísland verður heiðursgestur á bókamessunni í Frankfurt um miðjan mánuðinn voru allar skáldsögur hennar endurprentaðar þar í landi í kilju. Einnig kemur Karlsvagninn, nýjasta skáldsaga hennar, út í fyrsta skipti í Þýskalandi, innbundin.
Bækurnar hafa allar fengið nýjar kápur í samræmdum stíl af þessu tilefni en þetta eru skáldsögurnar Mávahlátur, Kular af degi, Hús úr húsi, Karitas án titils, Óreiða á striga og eins og áður var getið Karlsvagninn. Endurútgáfa þessi, á öllum skáldverkum höfundar á erlendri grundu, eru stórtíðindi fyrir íslenskan höfund og ekki síður mikill heiður. Það er Krüger Verlag sem gefur bækurnar út en það er dótturforlag útgáfurisans Fischer Verlag.