Hér er bókin komin sem kemur þér af stað. Út að hlaupa er alhliða hlaupabók sem nýtist bæði þeim sem eru að reima á sig hlaupaskóna í fyrsta sinn og reyndari hlaupurum. Höfundar bókarinnar, fjölmiðlakonurnar Elísabet Margeirsdóttir og Karen Kjartansdóttir, hafa báðar reynslu af hlaupum og hefur Elísabet meðal annars keppt í fjölmörgum maraþonhlaupum hér heima og erlendis. Auk þess að miðla af þekkingu sinni leita þær til Róberts Magnússonar sjúkraþjálfara og fleiri sérfræðinga. Út að hlaupa er einstaklega gagnleg og fróðleg bók fyrir allt áhugafólk um hlaupaíþróttina. Nú duga engar afsakanir, allir út!