Bók Gunnars Karlsonar, Ástarsaga Íslendinga að fornu, var til umræðu í bókmenntaþættinum Kiljunni í gærkvöldi og hlaut glimrandi dóma. Gagnrýnendur voru á einu máli um að þarna væri á ferðinni vönduð, auðlæsileg og um fram allt skemmtileg fræðibók sem ætti að höfða til allra sem áhuga hafa á ástarmálum forfeðra og -mæðra okkar Íslendinga. Ástarmál Íslendinga hafa síður en svo verið slétt og felld í gegnum aldirnar og hér kafar Gunnar ofan í ástir og örlög persóna Íslendingasagnanna á sinn einstaka hátt. Kolbrún Bergþórsdóttir sagði meðal annars: „Mér finnst svo gott að það sé til fræðimaður sem standi með ástinni og standi með tilfinningum en sé ekki þessi kaldi, ofurvísindalegi fræðimaður sem hafnar tilfinningalega þættinum í lífi fólks.“
Jólagjöf allra sem áhuga hafa á sögu land og þjóðar!