Olafur Gunnarsson

Áhugavert líf og heillandi heimar

Ritdómarar keppast við að lofa smásagnasafn Ólafs Gunnarssonar, Meistaraverkið, og virðist öllum bera saman um að Ólafur hafi jafnföst tök á smásögunni og á stórum skáldsögum. Síðast fór Einar Falur Ingólfsson lofsamlegum orðum um smásögur Ólafs í dómi í Morgunblaðinu. Þar segir Einar Falur meðal annars:

„Höfundi tekst vel að draga persónurnar skýrum dráttum, gæða þær lífi þótt sögurnar séu stuttar; að vekja samkennd lesandans með þeim. Stíllinn er tær og knappur, og samtöl lipur. Hversdagslegt andrúmsloftið sem er splundrað með afgerandi atburði, stundum slysi eða óviljaverki, minnir á stundum á einkenni sagna bandaríska smásagnameistarans Raymonds Carvers og er það ekki leiðum að líkjast. Oft er talað um að smásagan eigi erfitt uppdráttar, í samkeppni við hina löngu og hefðbundnu skáldsögu. Í vel lukkuðum smásögum er þó alls ekki síður hægt að kveikja áhugavert líf og varpa upp heillandi heimum. Það tekst Ólafi svo sannarlega í bestu sögum þessa vandaða sagna úrvals.“

INNskráning

Nýskráning