KK afmælistónleikar

Afmælistónleikar KK

Einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, Kristján Kristjánsson, KK fagnar á þessum ári 25 ára starfsafmæli. Af því tilefni heldur KK tónleika í Háskólabíói þann 11. september nk. ásamt góðum gestum.

KK kom sem ferskur blær inn í íslenskt tónlistarlíf árið 1991 með plötu sinni Lucky One og hefur allar götur síðan verið eitt stærsta nafnið í íslenskri tónlist. KK hefur gert átta plötur í sínu nafni, fimm plötur í samstarfi við Magnús Eiríksson, tvær plötur með hljómsveit sinni KK Band, eina jólaplötu með systur sinni Ellen auk tónlistar fyrir leikhús og kvikmyndir.

Tónleikarnir á laugardaginn hefjast kl. 21 og fer miðasalan fram á Midi.is.


INNskráning

Nýskráning