Fimmtudaginn 18. september næstkomandi verður Einar Már Guðmundsson sextugur. Sama dag gefur Forlagið út safn ljóða hans á ensku, On the Point of Erupting, í þýðingu margra okkar helstu þýðenda. Silja Aðalsteinsdóttir ritstýrði bókinni og ritar formála.
Einar fagnar útgáfu bókarinnar á sjálfan afmælisdaginn í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi, frá kl. 17-18.
Komið og fagnið með skáldinu!
Allir velkomnir og léttar veitingar í boði.