Ísland

Afgreiðslutími um verslunarmannahelgi

Nú líður senn að stærstu ferðahelgi sumarsins og um að gera að grípa með sér ferðabækur, kort eða góða skáldsögu í fríið. Verslunin okkar á Fiskislóð býður upp á mesta úrval landsins á bókum, næg bílastæði og svo er alltaf heitt á könnunni.

Búðin er að vanda opin virka daga milli 10 og 18 en lokað verður laugardaginn 2. ágúst og sömuleiðis frídag verslunarmanna þann 3. ágúst.

Endilega lítið við í vikunni og skoðið úrvalið!

INNskráning

Nýskráning