Rithöfundarnir og skánafnarnir Bragi Ólafsson og Steinar Bragi fá ljúfar kveðjur frá gagnrýnanda bandarísku Bókadræsunnar – vefritsins Bookslut, sem fjallaði á dögunum um safnritið Best European Fiction 2010. Steinar Bragi á smásögu í safninu en því er ritstýrt af hinum virta kollega þeirra Alexander Hemon. Forlagið Dalkey Archive Press gaf bókina út nú í byrjun janúar. Saga Steinars Braga, „Himinninn yfir Þingvöllum“ er í miklu uppáhaldi hjá gagnrýnandanum og hann segir hana hreinlega gallalausa. Bragi fær á hinn boginn einkunina „hinn mikli“ og eru lesendur hvattir til þess að kynna sér einnig skáldsögu hans Gæludýrin, The Pets, sem nýverið kom út í Bandaríkjunum.