Dagur Hjartarson

Afar áhugaverð frumraun

Nú rétt fyrir helgi kom út Síðasta ástarjátningin, afar áhugaverð og fersk frumraun Dags Hjartarsonar á skáldsagnasviðinu.

Bókin segir frá ungum manni sem flytur til Reykjavíkur og verður þátttakandi í óvenjulegu verkefni æskuvinar síns. Á sama tíma fellur hann fyrir Kristínu. Tilvera hans er skáldleg, hvert andartak ort.

Dagur hefur áður sent frá sér ljóðabókina Þar sem vindarnir hvílast og fleiri einlæg ljóð, en fyrir hana hlaut hann Bókmenntaverðlaunverðlaun Tómasar Guðmundssonar, og smásagnasafnið Eldhafið yfir okkur. Á dögunum hlaut hann Ljóðstaf Jóns úr Vör fyrir ljóð sitt Haustlægðin. Síðasta ástarjátningin er allt í senn falleg, fyndin og spennandi skáldsaga um ástina, listina og lífið. Með henni skipar Dagur sér á bekk með áhugaverðustu höfundum þjóðarinnar.

Á fimmtudaginn næstkomandi, 3. mars, kl. 17 fögnum við útgáfunni í Eymundsson Austurstræti. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir. Hér má melda sig á Facebook.

INNskráning

Nýskráning