Af hverju kærðir þú ekki?

Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Á mannamáli, flytur erindi á ráðstefnu um nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim sem haldin verður nk. þriðjudag í tilefni af 20 ára afmæli Stígamóta. Erindið ber yfirskriftina „Og af hverju kærðirðu ekki?“. Dómsmálaráðherra, Ragna Árnadóttir, opnar ráðstefnuna en fundarstýra er Guðrún Agnarsdóttir. Meðal ræðumanna eru Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir,  Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari og Þorbjörg Inga Jónsdóttir hæstaréttarlögmaður

Ráðstefnan fer fram á Grand hóteli þriðjudaginn 9. mars og stendur frá 13-17.  Sjá nánar á heimasíðu Stígamóta.

INNskráning

Nýskráning