Glænýjar jólabækur flæða nú um búðarborð og barist er um sæti á metsölulistum. Sumar bókanna fara þó hægt og hljótt um bókamarkaðinn og komast samt í efstu sætin. Ein þessara – og kannski óvæntasta metsölubókin þessi jólin – er fyrsta bindi æviminninga Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk. Hún kom fyrst út árið 1976 en hefur nú verið endurútgefin í kilju og situr tryggilega í öðru sæti á kiljulista Eymundsson.
Þegar bókin kom fyrst út fyrir liðugum 30 árum vakti hún mikið umtal fyrir fádæma orðsnilld, persónusköpun og stíl en þó fyrst og fremst fyrir þá sögu sem þar var sögð, sögu af fátæku fólki á Íslandi á uppvaxtarárum höfundarins. Saga Tryggva hrífur lesendur greinilega enn í dag og sýnir svo ekki verður um villst að góð bók heldur gildi sínu þótt ár og dagur (og jólabókavertíðir!) líði.