Á eigin vegum í Finnlandi

Skáldsaga Kristínar Steinsdóttur, Á eigin vegum, kemur brátt hjá finnska forlaginu Lurra. Bók Kristínar hefur víða vakið athygli, hún hlaut á sínum tíma Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Á eigin vegum hefur þegar komið út í Svíþjóð, Austurríki, Sviss og Þýskalandi og fengið prýðisgóðar viðtökur. Von er á annarri þýskri útgáfu bókarinnar í kilju með vorinu frá forlaginu DTV.

INNskráning

Nýskráning