Sigfríður Gunnlaugsdóttir skrifar lofsamlega um Aukaspyrnu á Akureyri, aðra bók Gunnars Helgasonar um Jón Jónsson og vini hans í boltanum, á vefritið Druslubækur og doðrantar í dag. Þar segir meðal annars: „Líkt og í fyrri bókinni er frásögnin fjörleg og hröð. Tungutakið er lipurt og þannig að maður getur vel ímyndað sér að það sé nærri því sem krakkar á þessum aldri nota. … Gunnari Helgasyni tekst vel upp í þessum bókum, hann nær að höfða til lesenda, bæði yngri og eldri kynslóðarinnar.“ Í lok umfjöllunarinnar segir: „Mér finnst það í raun aðdáunarvert að hafa fengið þessa dágóðu hugmynd að skrifa bækur sem vísa beint í þessa vinsælu íþróttagrein og taka fyrir mótin sem svo margir krakkar, bæði strákar og stelpur, taka þátt í á hverju sumri með misbrjálaða foreldra á hliðarlínunni.“
Fleiri hafa hrósað Gunnari fyrir bækurnar og hugmyndina að baki þeim. Honum hafa nefnilega borist fjölmörg bréf, ekki bara frá ánægðum lesendum heldur einnig foreldrum sem upplifa það í fyrsta sinn að sjá börnin þeirra grúfa sig ofan í bók og setja bækur á óskalista yfir jólagjafir. Höfundur er að vonum í skýjunum yfir þessum viðbrögðum en þó jafnast gleði hans seint á við þann ávinning sem lesendurnir nýju munu hafa af því að hafa loksins týnt sér í bók.