Ný bók hins finnska Antti Tuomainen Að gæta bróður míns, sem einnig er höfundur verðlaunabókarinnar Græðarans, hlaut frábæra dóma hjá þeim Friðriku Benónýsdóttur og Þorgeiri Tryggvasyni í Kiljunni í gærkvöldi.
Að gæta bróður míns er fyndin og átakanleg kynslóðasaga með vænni skvettu af glæpasögu. Bókin segir frá Klaus Haapala sem hefur reynt hvað hann getur að feta aðra slóð en faðir hans og afi – sem báðir leiddust út á braut glæpa – þangað til að einn daginn allt breytist og veröld Klaus snýst á hvolf.
Um bókina hafði Friðrika m.a. þetta að segja: „Hann gerir þetta alveg ofboðslega vel … Þessar persónur eru af holdi og blóði – manni finnst maður þekkja þá … Honum tekst að koma manni algjörlega í opna skjöldu … Hrikalega skemmtileg! … Það eiga bara allir að lesa þessa bók sem hafa gaman af skemmtilega og vel skrifuðum bókum.“
Þorgeir tók í sama streng og bætti við að bókin væri „virkilega skemmtileg“. Egill Helgason sagði sömuleiðis að lesendur ættu von á góðri kvöldstund við lestur Að gæta bróður míns.
Ekki láta þessa frábæru bók fram hjá þér fara!