Gleðileikurinn guðdómlegi

990 kr.

Gleðileikurinn guðdómlegi
[ti_wishlists_addtowishlist]

Um bókina

Gleðileikurinn guðdómlegi eftir ítalska skáldið Dante Alighieri (1265–1321) var saminn á árunum 1307–1320 og hefur æ síðan verið eitt vinsælasta, virtasta og áhrifamesta bókmenntaverk í hinum vestræna heimi. Í kvæðinu segir Dante frá ferð sinni um handanheima, víti, hreinsunareld og paradís, í fylgd rómverska skáldsins Virgils og sinnar ástkæru Beatrísar. Hann lýsir í auðugu máli og af djúpri samúð örlögum ótal manna sem hann hittir á leið sinni og fléttar listilega saman forna tíma og samtíma sinn.

Gleðileikurinn kom í fyrsta sinn út í heild á íslensku árið 2010 í meistaralegri lausamálsþýðingu Erlings E. Halldórssonar sem er löngu landskunnur fyrir þýðingar sínar, meðal annars á Gargantúa og Pantagrúl eftir Rabelais, Satýrikon eftir Gajus Petróníus, Tídægru Boccaccios og Kantaraborgarsögum eftir Chaucer. Erlingur ritar einnig formála að verkinu. Bókina prýða myndir eftir Gustave Doré.

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning