Afhendingin

Handskrifaða eintakið afhent

Um helgina voru fékk Hrönn Þórarinsdóttir afhenda bókina Ég elska máva, eina handskrifaða eintakið, ásamt listaverki eftir Erró. Nafn Hrannar kom upp úr hattinum þegar dregið var úr nöfnum þeirra sem styrktu Barnaspítala Hringsins með fjárframlagi í söfnun sem Þorgrímur Þráinsson stóð fyrir.

Fyrir jól handskrifaði Þorgrímur eintak af nýjustu bók sinni og fékk fjölda listamanna til að myndskreyta verkið. Nú hefur bókin verið bundin inn og afhent vinningshafanum.

Öllum sem tóku þátt er þakkað fyrir þeirra framlag. Myndin sem fylgir fréttinni var tekin við afhendingu verðlaunanna en með Hrönn á myndinni eru Haukur Geir Garðarsson, talsmaður Erró, og Þorgrímur Þráinsson.

Meðal listamannanna sem myndskreyttu bókina eru Erró, Tolli, Kristín Gunnlaugs, Helgi Þorgils, Pétur Gautur, Lína Rut, Hugleikur Dagsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir, Lóa Hjálmtýsdóttir, Þorgrímur Kári Schram, tveir 7 ára nemendur Ísaksskóla; Sóllilja Andrá Indriðadóttir og Bjarni Einarsson. Svo er ein opna helguð landsliðinu í knattspyrnu karla, en þeir sýndu stuðning sinn í verk með eiginhandaráritun á einni opnu.

INNskráning

Nýskráning