Raddir úr húsi loftskeytamannsins

Loftskeytamanninum fagnað

Á morgun, miðvikudaginn 9. mars, fögnum við útgáfu bókarinnar Raddir úr húsi loftskeytamannsins eftir Steinunni G. Helgadóttur. Steinunn er myndlistarkona og hefur getið sér gott orð fyrir ljóðabækur sínar. Raddir úr húsi loftskeytamannsins er frumraun hennar á skáldsagnasviðinu.

Ungur maður ætlar að leita uppi ellefu hálfsystkin sem öll eru fædd á sama árinu, ástfælinn bóksali gengur aftur og fylgist með nýjum lesendum, ólíkar systur reka saman sjoppu í Þingholtunum á meðan óreglumenn krunka sig saman á nýju tilvistarsviði.

Einmana loftskeytamaður er í sambandi á öldum ljósvakans en skrifar skáldverk þess á milli. Hann fyllist tortryggni þegar aðrir rithöfundar eru á yfirskilvitlegan hátt á undan honum að koma út bókum hans. Með aðstoð vísindanna tekst honum að snúa vörn í sókn.

Útgáfuboðið fer fram í Eymundsson Austurstræti milli 17 og 19. Allir velkomnir og léttar veitingar í boði. Hér má melda sig á Facebook.

INNskráning

Nýskráning