Næstkomandi sunnudag flytur Söngsveitin Fílharmónía Heimsljós – Íslenska sálumessu eftir Tryggva M. Baldvinsson. Verkið sækir efnivið sinn og texta til einnar ástsælustu skáldsögu okkar, Heimsljóss Halldórs Laxness, en uppbyggingu og anda til sígildra sálumessa tónbókmenntanna. Verkið er meðal metnaðarfyllstu kórverka eftir íslenskt tónskáld, skrifað fyrir blandaðan kór, 30 manna hljómsveit og tvo einsöngvara. Það var samið að beiðni kórsins á hálfrar aldar afmæli hans fyrir sex árum og er nú flutt í annað sinn.
Einsöngvarar á tónleikunum verða Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran og Snorri Wium, tenór; stjórnandi er Magnús Ragnarsson og konsertmeistari Sigrún Eðvaldsdóttir. Halldór Guðmundsson og Silja Aðalsteinsdóttir flytja formála að verkinu. Tónleikarnir verða í Langholtskirkju sunnudaginn 13. mars og hefjast kl. 20. Miðar fást á midi.is.