Bókin Allra meina bót hefur gert allt vitlaust á Norðurlöndunum undanfarin misseri og er nú komin út í íslenskri þýðingu. Samkvæmt höfundum bókarinnar; Anders Hanssen, lækni, og Carl Johan Sundberg, prófessor; er hreyfingin mikilvægasta lyfið og lykillinn að löngu og heilbriðgu lífu sé ekki fólgin í öfgum, kúrum eða skyndilausnum heldur einfaldlega heilbrigðri skynsemi.
Töframeðul í heilsubótarskyni gefa sjaldnast góða raun. Hreyfing er undantekningin frá reglunni! Stórstígar framfarir hafa orðið í þekkingu á áhrifum hreyfingar og æfinga á líkama og sál. En hvernig eigum við að hreyfa okkur til að heilsufarslegur ávinningur verði sem mestur?
• Líf þitt lengist um tvær til fimm klukkustundir fyrir hverja klukkustund sem þú hreyfir þig.
• Einbeiting, sköpunarhæfni og minni skerpast þegar þú hreyfir þig.
• Lotuþjálfun eykur brennsluna.
• Mismunandi hreyfing hefur ólík áhrif á matarlystina.
• Lífshættir þínir geta breytt genunum — og þessar breytingar geta erfst frá kynslóð til kynslóðar.
• Röskar göngur vinna gegn minnistapi, Alzheimer og Parkinson.
• Jafnvel lítil hreyfing gerir mikið gagn, bæði hvað varðar líkamlegt form og heilsu.