Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015

Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær miðvikudaginn 10. febrúar. Einar Már Guðmundsson hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Hundadaga, Gunnar Helgason hlaut verðlaunin í flokki barna- og unglingabóka fyrir Mömmu klikk og Gunnar Þór Bjarnason í flokki fræðibóka og rita almenns efnis fyrir Þegar siðmenningin fór fjandans til.

Þetta er í 27. skipti sem Íslensku bókmenntaverðlaunin eru veitt.

Skáldsagan Hundadagar eftir Einar Má Guðmundsson kom út samtímis í Danmörku og á Íslandi og hefur fengið einstaklega góða dóma, þar á meðal fimm stjörnur í Politiken. Bókin kemur út í kilju innan skamms.

Mamma klikk eftir Gunnar Helgason hefur hlotið einróma lof og er bókin tilnefnd af íslensku dóm­nefnd Barna- og ung­linga­bóka­verðlauna Vestn­or­ræna ráðsins til verðlaun­anna fyrir árið 2016. Verðlaun­in hafa verið veitt annað hvert ár frá ár­inu 2002 og er nú til­nefnt til þeirra í átt­unda skipti.

Þegar siðmenningin fór fjandans til eftir Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing hlaut verðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Árið 2012 kom út eftir hann bókin Upp með fánann! Baráttan um uppkastið og sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Hún hlaut einstaklega góðar viðtökur, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna. Einnig hlaut hún Menningarverðlaun DV í flokki fræðirita.

Forlagið óskar höfundunum innilega til hamingju með stórkostlegan árangur!

INNskráning

Nýskráning