Íslenskum höfundum barst liðsauki úr óvæntri átt þar sem velgengni Dags Sigurðarsonar landsliðsþjálfara Þjóðverja í handbolta hefur dregið athyglina að íslenskum bókmenntum eins og sjá má í þessari grein á vefsvæði þýska miðilsins WAZ.
Í greininni er umfjöllunarefni WAZ, Skuggasund Arnaldar Indriðasonar.
Arnaldur er þó ekki sá eini sem nýtur velgengni á erlendri grundu því forlögin Open Letter í Bandaríkjunum og Actes Sud í Frakklandi hafa nú keypt útgáfuréttinn að Sögumanni Braga Ólafssonar.
Løvens forlag í Danmörku keypti réttinn að Börnunum í Dimmuvík eftir Jón Atla Jónasson
Bækur Jóns Gnarr Indjáninn og Sjóræninginn njóta mikilla vinsælda og kemur Indjáninn út í Búlgaríu og Sjóræningjans er að vænta í Tékklandi, en Indjáninn kom út þar fyrir skömmu við góðan orðstír.
Einnig hlaut Phil Roughton viðurkenninguna Nadia Christensen Prize frá American Scandinavian Foundation fyrir þýðingu á Gerplu Halldórs Laxness.
Útrás íslenskra bóka er því ekki í neinni lægð.