173 bækur eftir allra þjóða höfunda má finna á nýjum heiðurslista barnabókasamtakanna IBBY – International Board on Books for Young People. Landssamböndum IBBY um allan heim býðst að tilnefna bækur á listann, jafnt frumsamdar sem þýddar, og eru bækurnar kynntar á margvíslegum bókasýningum næstu tvö árin og á alþjóðaþingi IBBY sem fram fer í Auckland á Nýja Sjálandi síðsumars. Tveir íslenskir höfundar eru á listanum, Ármann Jakobsson fyrir bók sína Síðasti galdrameistarinn og Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Skrímslakisi, sem hún vann ásamt Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Þá er á listanum Magnea J. Matthíasdóttir sem tilnefnd er fyrir þýðingu sína á Afbrigði eftir Veronica Roth. Óskar Forlagið þeim öllum innilega til hamingju.