Jónína Leósdóttir

Fyrsta endurprentun ársins

Bókaárið 2016 fer af stað með látum og Forlagið hefur strax endurprentað bók sem kom út á þessu ári. Konan í blokkinni eftir Jónínu Leósdóttur kom út 5. janúar og endurprentun komin í hús innan við mánuði seinna.

Jónína Leósdóttir er þekkt fyrir skáldsögur sínar, fullar af hlýju og húmor. Hér sendir hún frá sér glæpasögu sem ber sömu einkenni og rígheldur lesanda allt til enda.

Edda er nýhætt að vinna og dauðleiðist tíðindalaus tilvera eftirlaunaþegans. Þegar hún kemur heim úr skammdegisferð til Kanaríeyja bíður hennar bréf frá ókunnugum Þjóðverja sem biður hana að hjálpa sér að finna mömmu sína, konu sem Edda skrifaðist á við á yngri árum en er nú stungin af, mögulega til Íslands. Edda tekur verkefninu fegins hendi en ættingjar hennar eru allt annað en kátir. Á sama tíma vaknar menntaskólakennari á fertugsaldri upp við furðulegar aðstæður og þarf að komast að því hvort hún eigi sér mögulega óvildarmenn sem óska henni alls ills – jafnvel dauða.

INNskráning

Nýskráning