Um 800 manns mættu í Háskólabíó síðastliðinn fimmtudag til að hlýða á Tom Kelley frá IDEO fjalla um Sköpunarkjark.
Tom og bróðir hans David eru höfundar nýútkominnar bókar sem ber nafnið Sköpunarkjarkur (e. Creative Confidence) sem hefur verið þýdd á íslensku. Lesa má meira um þessa frábæru bók hér. Tom sagði fjölmargar skemmtilegar sögur sem flestar koma fyrir í bókinni. Sögurnar fjalla á einhvern hátt um einstaklinga sem fara frá því að líta alls ekki á sig sem skapandi einstakling yfir í að hafa gott traust á því ferli sem við köllum sköpun og líta á sig sem skapandi manneskju.
Góður rómur var gerður að fyrirlestrinum og að honum loknum áritaði Tom yfir 100 bækur fyrir áhugasama gesti.
Í tengslum við bókina mun Karl Guðmundsson, sem átti frumkvæðið að heimsókn Kelleys hingað til lands, fara af stað með námskeið í Endurmenntun Háskóla Íslands. Farið verður yfir hönnunarhugsun (e. design thinking) og mannvæna hönnun (human centric design) og hvernig slík aðferðafræði getur aðstoðað þig af stað í sköpunarferlinu.
Í námskeiðslýsingunni segir meðal annars:
Í starfi og persónulegu lífi þurfum við að leysa fjölbreytt verkefni. Oft hættir okkur til að hjakka í sama farinu og grípa til gömlu lausnanna. Á þessu námskeiði kynnast þátttakendur traustri aðferðafræði til að leyfa sköpunargleðinni að njóta sín og leysir úr læðingi sköpunarkraftinn sem býr innra með okkur öllum.
Öll búum við yfir sköpunarkrafti en mörg okkar töpuðum kjarkinum til að leyfa honum að blómstra á einhverjum tímapunkti. Hvernig getum við fengið aftur þennan kjark og notað sköpunarkraftinn til að finna lausnir á verkefnum og koma hugmyndum okkar í verk?
Frekari upplýsingar um námskeiðið og skráningu má finna hér.