Það var enginn eins hissa og höfundurinn Fredrik T Olsson þegar hann var búinn að selja handrit fyrstu bókar sinnar Síðasti hlekkurinn til 25 landa áður en hún kom út á frummálinu, sænsku.
Fredrik T Olsson hefur skrifað fjölmörg kvikmyndahandrit en þetta er fyrsta skáldsaga hans. Bókin er frábær lesning og það er greinilegt að höfundurinn er vanur að byggja upp spennu. Hann byggir bókina upp ekki ólíkt spennumynd og fléttar saman sögur á meistaralegan og auðskilin hátt þar sem persónur eru kynntar til leiks smátt og smátt og fléttan lifnar fyrir augum lesandans.
Hryllileg farsótt ógnar lífi á jörðinni. Við vitum hvað er í vændum. En ekki hvernig á að stöðva hana. Síðasti hlekkurinn er sannkallað kapphlaup við tímann sem fær lesendur til þess að reyta hár sitt af spenningi.
„Ekkert hefði getað fengið mig til að halda dagbók.
Hlutirnir gerast. Tíminn líður. Lífið byrjar, rennur sitt skeið og tekur enda; og ekkert af merkingarleysinu batnar við að skrifa það niður og skoða það síðan eftir á. Og einn góðan veðurdag er öllu lokið, og ef ég veit eitthvað í minn haus þá veit ég það að þegar moldin skellur á kistulokinu yfir mér dettur ekki nokkrum lifandi manni í hug að lesa hvað ég var að afhafast einhvern mánudag í mars.
Ekkert hefði getað fengið mig til að halda dagbók.
Nema eitt.
Sú vissa að bráðlega verði enginn eftir til að lesa hana.“